Nýherji hf. og allir hlutahafar Tölvusmiðjunnar ehf. undirritaðu í dag samning um kaup Nýherja á 100% hlutafjár í Tölvusmiðjunni, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Kaupin eru fjármögnuð með eigin fé Nýherja og er kaupverð trúnaðarmál að svo stöddu. Rekstur Tölvusmiðjunnar verður hluti af samstæðuuppgjöri Nýherja frá og með 1. október 2006.
Nýherji hefur á undanförnum árum starfað að ýmsum verkefnum á Austurlandi, mikið í samvinnu við Tölvusmiðjuna. Kaupin á Tölvusmiðjunni eru liður í að styðja betur við þá starfsemi og skapa forsendur til að bjóða lausnir Nýherja til viðskiptavina á Austurlandi, segir í tilkynningunni.
Tölvusmiðjan verður rekin sem sjálfstætt dótturfélag Nýherja. Áætluð velta félagsins á árinu 2006 er 120 milljónir króna.