Slysavarnarfélagið Landsbjörg hefur valið alrekstrarþjónustu Nýherja en hún felur í sér rekstur á upplýsingakerfum, notendabúnaði og miðlægum búnaði félagsins.

Emil Einarsson, framkvæmdastjóri Fyrirtækjasviðs Landsbjargar, segir kannanir og reynslu sýna að fyrirtæki geta sparað sér tugi prósenta með því að vera í alrekstrarþjónustu í stað þess að sjá sjálf um rekstur sinna tölvukerfa. Með altækum samningi fái viðskiptavinir einnig aðgang að sérfræðingum Nýherja sem eru alltaf til taks og veita persónulega þjónustu, að því er fram kemur í tilkynningu.

Nýherji er jafnframt einn af styrktaraðilum Slysarvarnafélagsins Landsbjargar.

Nýherji
Nýherji

Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, og Kristinn Ólafsson Landsbjörg takast í hendur eftir undirritun samningsins.