Nýherji [ NYHR ] stefnir að því að ljúka samningi við núverandi eigendur TM Software ehf. fyrir lok janúar, að því er fram kemur í uppgjöri Nýherja fyrir fjórða fjórðung sem birt var í dag.

Nýherji undirritaði í október samning um kaup á 77% hlutafár í TM Software ehf.

Áreiðanleikakönnun er lokið, en niðurstöður liggja ekki fyrir vegna ólokinna samninga TM Software ehf. við erlenda og innlenda aðila.