Tap Nýherja [ NYHR ] á fyrri hluta árs nam 432  milljónum króna samanborið við 209 milljón króna hagnað á fyrri árshelmingi 2007. Gengistap nam 455 milljónum króna.

„Rekstur og afkoma af kjarnastarfsemi Nýherja var ágæt og einnig af starfsemi Applicon erlendis,“ segir Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja í tilkynningu til Kauphallarinnar.

„Slök afkoma af fjarfestingum í nýrri starfsemi íþyngja rekstrinum, en áfram verður unnið að því að ná fram samlegð í núverandi og nýrri starfsemi innan Nýherja. EBITDA var lakari nú en á sama ársfjórðungi á síðasta ári, m.a. vegna tapreksturs einstakra eininga og talsverðrar gjaldfærslu á hugbúnaðarþróun. Lækkun á gengi íslensku krónunnar og háir vextir á Íslandi valda því einnig að afkoma félagsins er mun lakari en áætlanir gerðu ráð fyrir.”