Búið er að stofna nýtt fyrirtæki, Nýi Kaupþing banki hf.

Samkvæmt fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra ber hið nýja fyrirtæki kennitöluna 581008 - 0150 sem gefur til kynna að það hafi verið stofnað um helgina, nánar tiltekið á laugardag.

Líkt og Nýi Glitnir hf. og Nýi Landsbanki Íslands hf. er hið nýja félag til heimilis á Lindargötu 1-3, 101 Reykjavík sem er húsnæði fjármálaráðuneytisins við Arnarhvol.

Þann 7. október síðastliðinn var Nýi Landbankinn stofnaður og þann 9. þessa mánaðar var Nýi Glitnir banki stofnaður. Báðir hafa þeir tekið til starfa undir þeim merkjum.