Búið er að stofna nýtt fyrirtæki, Nýi Landsbanki Íslands hf.
Samkvæmt fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra ber hið nýja fyrirtæki kennitöluna 471008-0280 sem gefur til kynna að það hafi verið stofnað í dag.
Nýi Landsbanki Íslands hf. er til heimilis á Lindargötu 1-3, 101 Reykjavík sem er í húsnæði fjármálaráðuneytisins við Arnarhvol.
Ekki liggur fyrir hver stofnaði fyrirtækið eða hverjir sitja í stjórn þess.