Mikil fjölgun var á skráningum nýrra bíla í júní miðað við sama ár í fyrra. Samtals voru 2.576 bílar skráðir í júní síðastliðnum, en til samanburðar voru 1.965 bílar skráðir í sama mánuði í fyrra.

Það sem af er ári hafa 8.784 nýir bílar verið skráðir, sem er 37,7% aukning frá sama tímabili fyrir ári síðan.

Vísitala Gallup sem mælir væntingar fólks til bifreiðakaupa hefur ekki mælst hærri frá því í september 2007. Hún stóð í 32,1 stigi í júní og hefur hækkað um 5 stig frá því í mars á þessu ári.