Hjónin Arinbjörn Þórarinsson og Hugrún Helga Guðmundsdóttir hafa ásamt félaginu Natten ehf. keypt rekstur veitingastaðarins Greifans af Foodco.

Natten rekur meðal annars sölustaðina Ak-inn og Leirunesti á Akureyri og hefur keypt af sömu aðilum fasteignina við Glerárgötu 20 sem hýsir Greifann.

Haft er eftir Arinbirni Þórarinssyni, sem hefur undanfarin 10 ár rekið staðinn ásamt konu sinni Hygrúnu Helgu Guðmundsdóttur, að þau hjónin hafi átt ánægjulegt samstarf við Foodco síðastliðin tíu ár. Þau stefna að því að tryggja að Greifinn verði áfram fjölskylduveitingastaður sem bjóði upp á góðan mat og þjónustu á góðu verði og haldi áfram að styðja ötullega við bakið á menningar- og íþróttalífinu að norðan.