Hópur nýrra eigenda sem leiddur er af Jóni Ósmann Arasyni hefur keypt Martak ehf. af Ómari Ásgeirssyni sem stofnaði Martak árið 1995. Lykilstarfsmenn Martaks eru í eigendahópnum.

Martak býður upp á lausnir í matvælavinnslu,en markmið nýrra eigenda er að byggja á grunni fyrirtækisins í lausnum fyrir fiskvinnslu og sjávarútveg og nýta viðskiptasambönd sín til sækja fram á mörkuðum.

Nýir eigendur telja veruleg tækifæri liggja í að nýta breikka viðskiptamannahóp innan matvælaiðnaðar og leita nýrra markaða fyrir lausnir félagsins.

„Martak hefur vaxið og dafnað undanfarin ár og náð markverðum árangri sem annað tveggja fyrirtækja í heiminum með heildarlausnir fyrir rækjuvinnslu. Það er tilhlökkunarefni að takast á við verkefni fyrirtækisins með nýjum eigendum sem horfa til langtíma uppbyggingar og sóknar,“ segir Stefán Haukur Tryggvason, framkvæmdastjóri Martaks sem mun áfram leiða fyrirtækið.

Hjá Martak starfa að jafnaði um 20 manns á Íslandi. Fyrirtækið er með tvær starfsstöðvar, vöruþróun, framleiðsla, sala og þjónusta á Íslandi og þjónusta og sala í Kanada, auk umboðsmanna og dreifingaraðila í Bandaríkjunum og víðs vegar um Evrópu.