Unnið hefur verið ð því að spara raforku og bæta meðhöndlun og gæði frystivara í lágvöruverðsverslunum Nettó. Þetta er m.a. gert með því að setja glerlok á 28 frysta í Nettó verslunum landsins að erlendri fyrirmynd. Í tilkynningun segir að með þessum breytingum spari hver frystir fyrir sig um 35.000 kílóvattstundir á ári, eða sem nemur orkunotkun 9 meðalstórra heimila.

Í krónum talið nemur árlegur sparnaður hvers frystis um 470.000 króna miðað við raforkuverð til heimila. Nettó mun með þessum hætti spara árlega tæplega milljón kílóvattstundir rafmagns eða álíka orku og ársnotkun 250 meðalstórra heimila. Heildarsparnaður vegna þessara breytinga á frystunum verður því samtals um 13 milljónir króna miðað við raforkuverð til heimila.

Í tilkynningunni segir að með þessum breytingum haldist gæði matvörunnar enn betur þar sem hitastig sé mun stöðugra, ísmyndun minni, auk þess sem orkusparnaðurinn muni leiða til verðlækkunar á frystum matvörum.