Fjármálaráðherra hefur skipað Þorstein Þorsteinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra Lánasjóðs sveitarfélaga, sem stjórnarmann Íslands í stjórn Norræna fjárfestingarbankans.

Meðal fyrri starfa Þorsteins var starf hjá Norræna fjárfestingarbankanum um 10 ára skeið.

Þá hefur fjármálaráðherra skipað Sigurð Þórðarson, fyrrverandi ríkisendurskoðanda, sem varamann í stjórn bankans.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu en Norræni fjárfestingarbankinn er í eigu Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Höfuðstöðvar bankans eru í Helsinki.