Auglýsingaleikstjórarnir Samúel Bjarki Pétursson og Gunnar Páll Ólafsson hafa fest kaup á þriðjungshluti í Skoti productions ehf. Um er að ræða nýtt hlutafé í félaginu en áður áttu þau Hlynur Sigurðsson og Inga Lind Karlsdóttir félagið að fullu.

Samhliða innkomu Samúels og Gunnars mun Skot taka að sér verkefni á sviði auglýsingagerðar fyrir sjónvarp og internet.

Skot hefur hingað til einbeitt sér að framleiðslu og þróun á sjónvarpsefni og er með nokkur verkefni á þróunarstigi í samvinnu við sjónvarpsstöðvarnar. Einnig festi Skot kaup á 35% í vefmiðlinum Nútímanum, en Skot og Nútíminn hafa verið í samstarfi um nokkurt skeið um framleiðslu á sjónvarpsefni fyrir nutiminn.is.