Á hluthafafundi í Geysir Green Energy sem haldinn verður í dag verður gengið frá aðkomu tveggja nýrra hluthafa í félagið og í kjölfarið verður kosin ný stjórn fyrir Geysi Green Energy.

Fundurinn sem verður haldin í bíósal Duus húss í  Reykjanesbæ hefst kl. 12.00.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.