Nú nýlega tóku þau Helga Hrund Bjarnadóttir og Pétur Þórðarson við rekstri Hótel Búða á Snæfellsnesi.
Þetta kemur fram á vef Skessuhorns en þar kemur fram að þau eru ekki óvön aðkomu að rekstrinum en bæði hafa starfað þar áður.
Pétur hefur starfað við hótelið í góðan áratug sem yfirkokkur og Helga hefur unnið þar af og til ásamt því að hún hefur lokið BA námi í hótelstjórnun í Sviss. Hún verður hótelstjóri á Búðum.
Bæði eru þau úr Staðarsveitinni og tengjast einnig á annan hátt því þau eru systkinabörn.