Mathús, fjölskylduvænt og framsækið mathús með fjölbreyttan mat fyrir alla fjölskylduna kvölds og morgna, og Loksins bar, sem hefur yfir að geyma úrval bjórs frá Borg brugghúsi ásamt miklu úrvali af víni og snöfsum, voru formlega opnuð með viðhöfn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á sjötta tímanum í morgun.

Það voru Sigurður Skagfjörð Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá Lagardère og Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, sem klipptu á borða við opnun Mathúss og buðu í leiðinni fyrstu farþegunum, Parísarbúunum Ann Sophie og Harold, upp á frían morgunmat. Gunnhildur Vilbergsdóttir, markaðsstjóri Isavia klippti á borðann við opnunina á Loksins bar á sama tíma.

„Með tilkomu þessara staða í Flugstöðinni fá farþegar á leið út úr landinu fyrsta flokks mat og drykki, fjölbreytt vöruframboð, ferska vöru og alþjóðaþekking matreiðslumanna og barþjóna nýtist til hins ítrasta. Íslensk hönnun nýtur sín sem aldrei fyrr á einum besta flugvelli Evrópu,“ segir í tilkynningu.