Straumur fjárfestingarbanki hefur ráðið til sín fimm nýja starfsmenn, en þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

Þannig hafa þeir Björgvin Jón Bjarnason og Jón Ingi Árnason gengið til liðs við Straum. Björgvin mun starfa í fyrirtækjaráðgjöf en  Jón Ingi við markaðsviðskipti bankans. Einnig hefur bankinn ráðið Þorlák Runólfsson sem framkvæmdastjóra markaðsviðskipta bankans, og einnig þá Ásgeir Baldurs og Jón Eggert Hallsson líkt og Viðskiptablaðið greindi frá í síðustu viku .

Þorlákur starfaði áður hjá Banque Havilland í Lúxemborg frá árinu 2009 en þar á undan starfaði hann við einkabankaþjónustu Kaupþings á Íslandi frá 2001.

Ásgeir Baldurs kemur frá ráðgjafarfyrirtækinu Expectus þar sem hann var ráðgjafi og meðeigandi frá árinu 2009. Ásgeir starfaði hjá VÍS á árunum 2000-2007 í ýmsum stjórnunarstöðum og var forstjóri félagsins frá árinu 2006 til 2007. Hann hefur setið í stjórnum nokkurra íslenskra og erlendra fyrirtækja á sviði fjármála- og tryggingastarfsemi.

Björgvin Jón Bjarnason hefur frá árinu 2011 verið sjálfstætt starfandi ráðgjafi við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja á vegum Dictum ehf. Árin 2010 og 2011 var hann framkvæmdastjóri Mjólku hf. og Vogabæjar ehf., en áður hafði hann stýrt ýmsum fyrirtækjum í matvælaiðnaði og flutningum. Björgvin hefur setið í ýmsum stjórnum fyrirtækja og hagsmunasamtaka síðustu áratugina.

Jón Eggert Hallsson kemur frá hjá Expectus þar sem hann var ráðgjafi frá árinu 2014. Hann starfaði við verðbréfamiðlun Glitnis/Íslandsbanka á árunum 2005 til 2009 og síðan sem framkvæmdastjóri og meðeigandi J Bond Partners til ársins 2013.

Jón Ingi Árnason kemur til Straums frá Landsbréfum þar sem hann var sjóðsstjóri frá árinu 2013 auk þess að sitja í fjárfestingaráði skuldabréfa. Frá 2007 til 2009 var hann forstöðumaður skuldabréfamiðlunar Glitnis/Íslandsbanka og síðan meðeigandi og stjórnarformaður J Bond Partners frá árinu 2009 til ársins 2013.