Níní Jónasdóttir og Auður Þórhallsdóttir hófu nýverið störf hjá VIRK starfsendurhæfingarsjóði.

Níní tók við stöðu sem sérfræðingur á mats- og eftirlitsdeild starfsendurhæfingarsviðs. Hún er hjúkrunarfræðingur með MSc gráðu í stjórnun á sviði heilbrigðisvísinda. Hún hefur víðtæka reynslu af stjórnun innan heilbrigðiskerfisins á Íslandi og í Svíþjóð.

Auður hefur störf sem deildarstjóri fræðslu-, þjálfunar- og mannauðdeildar sem er ný deild á starfsendurhæfingarsviði VIRK. Hún er menntaður grunnskólakennari og starfaði við kennslu í tæp tuttugu ár auk þess að gegna deildarstjórastöðu í grunnskóla. Einnig starfaði hún sem leiðtogi fræðslumála hjá Alcan í Straumsvík en hefur síðustu sjö ár starfað sem fræðslustjóri og mannauðsráðgjafi hjá Samskipum.