Aðalfundur Búnaðarsambands Suðurlands var haldinn í Aratungu fyrir helgi. Tveir nýir stjórnarmenn voru kjörnir, þau Guðbjörg Jónsdóttir á Læk og Gunnar K. Eiríksson í Túnsbergi.

Þetta kemur fram á vef Bændablaðsins.

Þorfinnur Þórarinsson formaður BSSL gaf ekki kost á sér áfram en kosið verður um nýjan formann stjórnar á næsta stjórnarfundi. Guðmundur Stefánsson í Hraungerði gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu en hann var ritari í gömlu stjórninni.

Ný stjórn Búnaðarsambands Suðurlands er þannig skipuð:

Guðni Einarsson, Þórisholti, Mýrdal

Ragnar Lárusson, Stóradal, V.-Eyjafjöllum

Egill Sigurðsson, Berustöðum, Ásahreppi

Guðbjörg Jónsdóttir, Læk, Flóahreppi

Gunnar Kr. Eiríksson, Túnsbergi, Hrunamannahreppi