Skipulagsbreytingar hafa verið gerðar hjá Krónunni sem fela það meðal í sér að innkaup og vörustýring hafa verið sameinuð, þjónustusviði bætt við rekstrarsvið, umhverfismálum við markaðssvið og nýtt svið viðskiptaþróunar og umbótaverkefna stofnað.

„Markmið þessara breytinga er að styrkja samkeppnisstöðu Krónunnar á matvörumarkaði með því að skerpa á innra skipulagi, auka samvinnu þvert á fyrirtækið og tryggja að Krónan uppfylli í enn ríkara mæli fyrirheit um að einfalda líf viðskiptavina sinna, þekkja þeirra væntingar og svara þeirra þörfum hvað varðar þjónustustig, vöruúrval, gæði og verðlag," segir Ásta Sigríður Fjeldsted, framkvæmdastjóri Krónunnar.

Guðrún Aðalsteinsdóttir mun stýra innkaupum og vörustýringu, Sigurður Gunnar Markússon mun stýra viðskiptaþróun og umbótaverkefnum, Ólafur Rúnar Þórhallsson mun stýra rekstri og þjónustu og Erla María Sigurðardóttir verður mannauðsstjóri. Þá mun Hjördís Elsa Ásgeirsdóttir áfram gegna hlutverki markaðsstjóra en nú sem forstöðumaður markaðs- og umhverfismála en með því er verið að skerpa enn frekar á umhverfisáherslum Krónunnar.

„Við óskum þeim öllum til hamingju með ný hlutverk, bjóðum þau hjartanlega velkomin og hlökkum til framhaldsins," segir Ásta Sigríður.

Guðrún Aðalsteinsdóttir - forstöðumaður innkaupa og vörustýringar

Guðrún Aðalsteinsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður sameinaðs sviðs innkaupa og vörustýringar, „en með sameiningu þessa tveggja lykilsviða næst enn betri samþætting í gegnum alla virðiskeðjuna frá upphafi til enda" er haft eftir Ástu Sigríði.

Guðrún er rekstrarverkfræðingur og hefur hún starfað sem forstöðumaður hjá Icelandair á rekstrarsviði undanfarin ár, þar sem hún var meðal annars ábyrg fyrir sölu og þjónustu í flugvélum félagsins, vöruþróun, innkaupum, birgðastýringu og framleiðslu því tengdu. Hún hefur enn fremur alþjóðlega reynslu frá Nýja Sjálandi og Danmörku, og starfaði m.a. hjá lyfjafyrirtækinu Novo Nordisk.

„Það er mikill fengur fyrir Krónuna að fá Guðrúnu til liðs, en hún hefur starfað sem ráðgjafi hjá fyrirtækinu um nokkra mánaða skeið og kynnst starfseminni náið. Guðrún kemur með ferska sýn inn í kraftmikið fyrirtæki og reynslu sem mun nýtast okkur vel. Við hlökkum mikið til samstarfsins," segir Ásta Sigríður.

Sigurður Gunnar Markússon - forstöðumaður viðskiptaþróunar og umbótaverkafna

Sigurður Gunnar Markússon, einn reyndasti stjórnandi Krónunnar, tekur við sem forstöðumaður viðskiptaþróunar og umbótaverkefna, en um er að ræða nýtt svið innan Krónunnar.

Sigurður Gunnar starfaði áður sem framkvæmdastjóri innkaupasviðs og hefur áratugareynslu af íslenskum matvörumarkaði. Hann hefur gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu Krónunnar og mótun nýrra verslana.

„Sigurður Gunnar mun gegna veigamiklu hlutverki í áframhaldandi þróun og uppbyggingu Krónunnar um leið og hans teymi heldur utan um umbótaverkefni og eftirfylgni þeirra þvert á fyrirtækið. Það er fagnaðarefni að fá jafn reynslumikinn mann inn í þetta lykilhlutverk hjá okkur," segir Ásta Sigríður.

Ólafur Rúnar Þórhallsson - forstöðumaður rekstrar og þjónustu

Ólafur Rúnar Þórhallsson, sem jafnframt er reynslumikill stjórnandi innan Krónunnar, tekur við sem forstöðumaður rekstrar og þjónustu, en hann hefur gegnt starfi rekstrarstjóra undanfarin tvö ár.

Ólafur Rúnar hefur starfað hjá Krónunni í 22 ár og hefur mikla reynslu af fjölbreyttum störfum innan fyrirtækisins. Ólafur Rúnar er með próf frá Iðnskólanum í Reykjavík, verslunarstjórapróf frá Háskólanum á Bifröst ásamt því að hafa tekið vörustjórnunarnámskeið við Háskólann í Reykjavík.

„Það er mikið fagnaðarefni að fylgjast með efnilegu fólki hjá Krónunni vaxa í starfi og er Ólafur Rúnar gott dæmi um slíkt. Hann hefur gríðarlega reynslu og djúpan skilning á rekstrinum og leggur samhliða höfuðáherslu á úrvals þjónustu við okkar viðskiptavini. Hlökkum til að sjá hann takast á við þetta nýja og spennandi svið," segir Ásta Sigríður.

Erla María Sigurðardóttir - mannauðsstjóri

Erla María Sigurðardóttir tekur við sem mannauðsstjóri Krónunnar. Erla María Sigurðardóttir er viðskiptafræðingur og er að ljúka meistaranámi í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

„Erla María þekkir vel til okkar starfa og starfsfólks en hún hefur unnið á mannauðssviði móðurfélags Krónunnar, Festi í um sex ár. Það er dýrmætt að fá í hóp stjórnenda Krónunnar sterka liðsmenn sem þekkja vel til okkar starfa og eru tilbúnir að taka næstu skref í vegferðinni með okkur. Hlökkum til samstarfsins," segir Ásta Sigríður.