Nýr svæðisstjóri hefur verið skipaður í Reykjavík vestur og útibússtjórar ráðnir hjá aðalútibúi Arion banka og útibúi bankans á Akureyri.

Sveinn Gíslason.
Sveinn Gíslason.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Fram kemur í tilkynningu frá bankanum að Sveinn Gíslason var nýlega skipaður svæðisstjóri í Reykjavík vestur og útibússtjóri aðalútibús Arion banka sem staðsett er á Laugavegi 120. Sveinn starfaði  áður sem forstöðumaður á fyrirtækjasviði bankans. Sveinn er með Cand.merc gráðu í rekstrarhagfræði frá Copenhage Business School og Cand.oecon gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

Jónas Björnsson.
Jónas Björnsson.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Þá var Jónas Björnsson ráðinn svæðisstjóri bankans á Norður- og Austurlandi tók nýlega einnig við sem útibússtjóri bankans á Akureyri. Jónas sem hefur áralanga reynslu úr fjármálakerfinu hefur starfað sem svæðisstjóri hjá  Arion banka síðan 2010. Jónas er rekstrarfræðingur frá Háskólanum á Bifröst.