Kjartan Orri Geirsson og Valdís Eyjólfsdóttir eru nýráðnir verkefnastjórar á fyrirtækjasviði Íbúðalánasjóðs.

Kjartan Orri Geirsson
Kjartan Orri Geirsson
© BIG (VB MYND/BIG)

Kjartan er viðskiptafræðingur að mennt frá Háskólanum í Reykjavík. Undanfarin tvö ár hefur hann starfað sem sérfræðingur á lánasviði MP banka. Þar áður sem viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði Sparisjóðabanka Íslands og starfaði hjá Anglo Irish Bank í Dublin.

Valdís er viðskiptafræðingur frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst og með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Einnig er hún með verðbréfamiðlarapróf frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur starfað sem sérfræðingur í útibúaþjónustu Íslandsbanka og sem hópstjóri fyrirtækjaaðgerða og sérfræðingur í verðbréfavörslu Glitnis.

Valdís Eyjólfsdóttir
Valdís Eyjólfsdóttir
© BIG (VB MYND/BIG)