Meðal frekari efnahagsaðgerða vegna kórónuveirufaraldursins sem ríkisstjórnin hefur boðað eru tillögur um útvíkkun tekjufallsstyrkja til fyrirtækja og nýja viðspyrnustyrki sem taki við af tekjufallsstyrkjum til að styðja við lágmarksstarfsemi á meðan áhrifa faraldursins gætir. Tekjufallsstyrkir verða hækkaðir í 17,5 milljónir króna að hámarki.

Ríkisstjórn Vinstri grænna, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks samþykkti tillögurnar á fundi sínum í morgun sem og tillögu heilbrigðisráðherra um hertar aðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins sem taka gildi á miðnætti.

Hyggst Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra leggja til við efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis að gerðar verði breyingar á fyrirlögðu frumvarpi um tekjufallsstyrki sem Viðskiptablaðið hefur fjallað um til að það nái til fleiri rekstraraðila og gildi í lengri tíma.

Meðal breytinga sem boðaðar eru nú eru:

  • fallið er frá skilyrðum um hámarksfjölda starfsmanna (3 skv. frumvarpi);
  • lagt er til að styrkir verði veittir fyrir allt að 5 stöðugildi;
  • styrkfjárhæð tekur mið af rekstrarkostnaði og tekjufalli: rekstraraðilar sem verða fyrir 40-70% tekjufalli geta átt rétt á styrk að fjárhæð 400 þús.kr. á mánuði á hvert stöðugildi, en sé tekjufallið 70-100% getur styrkur orðið 500 þús.kr. á hvert stöðugildi á mánuði;
  • tímabil er lengt í sjö mánuði frá 1. apríl sl. að telja;
  • hámarksstyrkur verður samkvæmt þessu 17,5 m.kr. á rekstraraðila.

Jafnframt verði lagt fram nýtt frumvarp um viðspyrnustyrki sem verði veittir í framhaldi af tekjufallsstyrkjunum allt fram á mitt næsta ár, en sambærileg skilyrði muni gilda um þau og eiga við um tekjufallsstyrkina. Verði þeir veittir með reglulegum greiðslum yfir að minnsta kosti sex mánaða tímabil eða allt fram á mitt næsta ár.

Einnig var rætt um mögulega framlengingu hlutabótaleiðarinnar sem renni út um áramótin, sem Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra hefur hafið undirbúning á.

Loks felst í frumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra um framhald lokunarstyrkja sem nú liggur fyrir Alþingi að það miðist ekki einungis við fyrirtæki sem hafi orðið hafa að loka eða stöðva starfsemi vegna takmarkana sóttvarnaryfirvalda sem þegar hafa komið til framkvæmda heldur einnig þeim sem kunni að koma til síðar.

Á vef Stjórnarráðsins er farið yfir dæmi um styrkveitingarnar sem miðað sé við í fyrirliggjandi frumvörpum:

Fyrir rekstraraðila með fimm starfsmenn eða fleiri sem gert var að loka (lokunarstyrkur og tekjufallsstyrkur):

  • Lokunarstyrkur í vor - 3.600.000 krónur
  • Lokunarstyrkur í september - 1.000.000 krónur
  • Lokunarstyrkur í okt og til 3. nóv 2.900.000 krónur
  • Tekjufallsstyrkur ef 70% - 100% tekjufall - 17.500.000 krónur
  • Hámark tekjufallsstyrks ef rekstraraðili hefur fengið hámark lokunarstyrkja fyrir lokanir til 3. nóv. - 10.000.000 krónur
  • Lokunarstyrkur í vor - 3.600.000 krónur
  • Lokunarstyrkur í sept - 1.000.000 krónur
  • Lokunarstyrkur í okt og til 3. nóv - 2.900.000 krónur
  • Tekjufallsstyrkur ef 40% - 70% tekjufall - 14.000.000 krónur
  • Hámark tekjufallsstyrks ef rekstraraðili hefur fengið hámark lokunarstyrkja fyrir lokanir til 3. nóv. - 6.500.000 krónur

Fyrir rekstraraðila með 5 starfsmenn eða fleiri sem ekki var gert að loka en myndi eingöngu eiga rétt á tekjufallsstyrk – miðast heildargreiðsla við hámark tekjufallsstyrks:

  • 70% - 100% tekjufall - 17.500.000 krónur í heildargreiðslur  - 2.500.000 á hvern mánuð
  • 40% - 70% tekjufall - 14.000.000 krónur í heildargreiðslur - 2.000.000 á hvern mánuð