Nýja Kaupþing hefur ákveðið að lækka útlánsvexti um 1 til 1,5 prósentustig frá og með 21. maí. Innlánsvextir lækka á bilinu 0,75- 3 prósentustig.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum en þetta er þá í fimmta sinn á þessu ári sem Nýja Kaupþing lækkar vexti. Lækkunin tekur bæði til verðtryggðra og óverðtryggðra inn- og útlána.

„Bankinn vill með áframhaldandi vaxtalækkunarferli koma til móts við þau heimili og fyrirtæki í landinu sem berjast við háa greiðslubyrði af skuldum sínum,“ segir í tilkynningu frá Nýja Kaupþing.

Fram kemur að yfirdráttarvextir fyrirtækja hafa á árinu lækkað úr 24,55% í 15,75% eða um 8,8 prósentustig og vextir óverðtryggðra skuldabréfa hafa lækkað um 10,4 prósentustig.

Innlánsvextir veltureikninga fyrirtækja hafa hins vegar á sama tímabili lækkað  minna en útlánsvextir eða um 5,2 prósentustig.