Nýja Kaupþing hefur fyrst íslenskra banka ákveðið að hætta töku sjálfskuldarábyrgða eða fasteignaveða þriðja aðila vegna lána til einstaklinga. Einstaklingar fá því framvegis fyrirgreiðslu eingöngu í takt við eigin greiðslugetu og efnahag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýja kaupþingi í dag en starfsfólk og stjórn Nýja Kaupþings hefur undanfarnar vikur unnið að stefnumörkun sem m.a. miðar að því að auðvelda einstaklingum að takast á við fjármálakreppuna og jafnframt að koma í veg fyrir að fólk verði fyrir sambærilegum skakkaföllum á ný, eins og það er orðað í tilkynningunni.

„Markmiðið er að endurvinna traust á fjármálakerfinu og sníða þjónustu þess að breyttum þörfum fyrirtækja og heimila,“ segir í tilkynningunni en þessi breyting, að hætta töku sjálfskuldarábyrgða og fasteignaveða þriðja aðila, er hluti af þeirri stefnumörkun.

Þá kemur fram að með þessari breytingu miðast lán einstaklinga eingöngu við þeirra eigin greiðslugetu og efnahag. Þá lágmarki þetta hættu á að fjárhagserfiðleikar einstaklinga smiti út frá sér í nærsamfélag þeirra.

„Reynsla bankans af ábyrgðum þriðja aðila, hefur ekki verið góð, innheimta þeirra hefur gengið treglega og skapað bankanum óþarfa óvild,“ segir í tilkynningunni og því sé afnám ábyrgða þriðja aðila rökrétt skref í því uppbyggingastarfi sem nú á sér stað.

Breytingin, sem tekur þegar gildi, er ekki afturvirk gagnvart þeim lánum sem Nýja Kaupþing yfirtók frá Kaupþingi eða hefur veitt frá stofnun bankans í október.