Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri Nýja Kaupþings og sveitarstjóri Borgarbyggðar, Páll Brynjarsson, hafa undirritað samkomulag um að Nýi Kaupþing Banki kaupi stofnfjárhlut Borgarbyggðar í Sparisjóði Mýrasýslu.

Kaupin eru háð samþykki stjórnar Nýja Kaupþings Banka, sveitarstjórnar Borgarbyggðar, eftirlitsstofnana og því að samningar náist við lánveitendur sparisjóðsins um áframhaldandi fyrirgreiðslu.