Stefán Jónsson útibússtjóri Nýja Kaupþings í Búðardal og á Hólmavík mun flytjast til starfa við höfuðstöðvar bankans í Reykjavík.

Við þá tilfærslu hefur verið ákveðið að yfirstjórn beggja útibúanna færist undir Nýja Kaupþing í Borgarnesi og verður Bernhard Þór Bernhardsson útbússtjóri þessara þriggja útibúa.

Þetta kemur fram á vef Skessuhorns en breytingarnar taka gildi frá og með næstu mánaðamótum.

„Með þessu má segja að verið sé að flytja ákvarðanatöku innan bankans nær viðskiptavinum hans þar sem t.d. útlánaheimildir í Borgarnesi eru mun hærri en þær hafa verið í Dölum og í Strandasýslu. Ýmislegt hagræði fæst með aukinni samvinnu útibúa sem gagnast mun viðskiptavinum bankans til lengri tíma litið,” sagði Bernhard Þór í samtali við Skessuhorn.