Nýja Kaupþing segir Skilanefnd SPRON bera alla ábyrgð á „þeirri óvissu sem nú ríkir hjá viðskiptavinum SPRON,“ eins og það er orðað í tölvupósti sem Berghildur Erla Bernharðsdóttir, upplýsingafulltrúi Nýja Kaupþings hefur sent starfsmönnum bankans og Viðskiptablaðið hefur nú undir höndum.

Þar kemur fram að stjórnvöld hafi farið þess á leit við Nýja Kaupþing laugardaginn 21. mars að allar innstæður viðskiptavina SPRON og nb.is færðust yfir til bankans en það hafi verið gert í kjölfar þess að Fjármálaeftirlitið tók yfir rekstur SPRON.

„Innstæðurnar sem færðust yfir í Nýja Kaupþing að beiðni stjórnvalda eru í raun skuld bankans við viðskiptavini SPRON,“ segir í tölvupóstinum.

„Þar sem innstæður eru forgangskröfur eru allar eignir SPRON að veði fyrir þeirri skuldbindingu sem Nýi Kaupþing tók yfir. Nýi Kaupþing hefur því talið nauðsynlegt að búið væri að ganga formlega frá skuldabréfi vegna innstæðna áður en farið væri að huga að sölu eigna SPRON.  Skilanefnd SPRON hefur ekki virt þessa kröfu bankans.“

Þá kemur fram að allt frá því að tilmælin komu frá stjórnvöldum hafi Nýja Kaupþingi verið umhugað að viðskiptavinir SPRON yrðu fyrir sem minnstri röskun. Fram kemur að innstæðurnar fluttust yfir í Nýja Kaupþing sunnudaginn 22. Mars og viðskiptavinir SPRON höfðu því strax aðgengi að debet-og kreditkortum, netbönkum SPRON og Nýja Kaupþings.

Einnig kemur fram að Nýi Kaupþing hefur það verkefni að sinna greiðsluþjónustu fyrir viðskiptavini SPRON. Í tölvupóstinum kemur fram að til að það geti gengið hnökralaust hefði verið nauðsynlegt að gerður yrði samningur við skilanefnd SPRON vegna þjónustu útlána viðskiptavina SPRON.

Skilanefnd SPRON skrifaði undir þjónustusamninginn miðvikudaginn 25. mars. Aðfararnótt fimmtudags færðust útlánin yfir til Nýja Kaupþings.

„Fljótt kom í ljós að skilanefndin vildi ekki láta af hendi nauðsynleg gögn til þess að Nýi Kaupþing gæti sinnt útlánaþjónustu fyrir viðskiptavini SPRON,“ segir í tölvupóstinum en að kröfu skilanefndarinnar færðust því útlán viðskiptavina SPRON aftur til nefndarinnar í nótt.

„Nýi Kaupþing harmar það rask sem viðskiptavinir SPRON hafa orðið fyrir vegna þessa,“ segir í tölvupóstinum.

„Nýi Kaupþing hefur nú þegar ráðið til sín á anna tug starfsmanna SPRON til þess að sinna sem best þeim verkefnum sem bankanum var gert að sinna. Skilanefnd ber því algjörlega ábyrgð á þeirri óvissu sem nú ríkir hjá viðskiptavinum SPRON.“