Ákveðið hefur verið að sameina útibú Nýja Kaupþings banka hf. í Mjódd og afgreiðsluna í Hamraborg við útibú bankans í Turninum í Kópavogi. Sameinað útibú tekur til starfa mánudaginn 12 október n.k. Fjöldi starfsmanna í sameinuðu útibúi í Turninum í Kópavogi verður 26. Útibússtjóri er Gunnar Jóakimsson. Í tilkynningu á heimasíðu Nýja Kaupþings kemur fram að bankanúmer haldast óbreytt sem og númer á debet-, tékka- og sparnaðarreikningum. Útibú Nýja Kaupþings á höfuðborgarsvæðinu verða alls tíu eftir breytinguna.