Nýtt litaflokkunarkerfi sem unnið hefur verið í samráði við almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra, sóttvarnaryfirvöld og fulltrúa allra skólastiga verður tekið upp frá og með næstu áramótum.

Samkvæmt tilkynningu Mennta- og menningarmálaráðuneytisins er markmiðið með nýja flokkunarkerfinu að auka fyrirsjáanleika og einfalda skipulag sóttvarnarráðstafana í skóla- og frístundastarfi hér á landi. Litakóðinn sjálfur tekur svo mið af almennri litaflokkun almannavarnardeildar Ríkislögreglustjóra, frá gráum, upp í gulan, appelsínugulan og loks rauðan.

Þar með standa litirnir fyrir Nýja normið, Vertu á verði, Aukin hætta og Alvarlegt ástand, en hægt er að lesa um hvað hver flokkur felur í sér varðandi reglur á vef Stjórnarráðsins . Nýja viðvörunarkerfið fyrir skóla- og frístundastarf snertir alla nemendur, kennara, starfsfólk og foreldra barna og ungmenna á öllum skólastigum, alls um 120 þúsund manns.

Í því má finna yfirlit yfir útfærslur og áhrif sóttvarnaráðstafana á mismunandi skólastigum og hversu langan fyrirvara má gera ráð fyrir vegna breytinga á þeim. Kerfið er hugsað til viðmiðunar og undirbúnings fyrir skólasamfélagið en það er ekki lagalega bindandi; gildandi reglugerðir heilbrigðisráðherra munu áfram stýra sóttvarnaráðstöfunum í skólum.

Almennar samkomutakmarkanir gilda nema annað sé sérstaklega tekið fram. Gert er ráð fyrir því að breytingar á lit eða stigi varúðarráðstafana verði tilkynntar með reglugerðarbreytingum.