Nýjasta módelið af Scania R-línunni mun í desember fá formlega útnefninguna Alþjóðlegur trukkur ársins 2010 eða - International Truck of the Year 2010. Það er dómnefnd atvinnubílablaðamanna í 22 Evrópulöndum sem komist hefur að þessari niðurstöðu. Þykir þessi útnefning afar eftirsóknarverð í evrópskum vörubílaiðnaði og byggir á 12 mánaða úttekt. Formaður dómnefndar, Gianenrico Griffini segir að Scania hafi með nýju R-línunni framleitt sannkallað listaverk sem setji ný viðmið í sparneytni, aksturshæfni og hagkvæmni. R-línan frá Scania fékk líka útnefninguna Alþjóðlegur trukkur ársins 2005. Umboðsaðili Scania hér á landi er Vélasvið Heklu.