Reykjavíkurborg hefur auglýst eftir  umsóknum um lóðir fyrir íbúðarhúsnæði í Úlfarsárdal og við Reynisvatnsás. Í tilkynningu kemur fram að verð á byggingarrétti er óbreytt frá því sem var haustið 2007. Nú bjóðast einnig mun hagstæðari greiðslukjör en áður, en kaupendur byggingarréttar, þ.e. lóðarhafar, geta greitt 85% af verði byggingarréttarins með 8 ára verðtryggðu veðskuldabréfi, sem ber 4,0% fasta vexti.

Í boði eru lóðir fyrir einbýlishús, parhús, raðhús og fjölbýlishús. Vakin er athygli á nýjum lóðavef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/lodir , en þar er að finna ítarlegar upplýsingar um lóðirnar, úthlutunar- og skipulagsskilmála, verð byggingarréttarins og margt fleira.

Lengri framkvæmdafrestir

Framkvæmdafrestir hafa verið lengdir og er nú t.d. gerð krafa um að hús sé orðið fokhelt innan fjögurra ára í stað tveggja ára áður. Húsbyggjendur hafa því rýmri möguleika en áður á að haga framkvæmdum eftir sínum þörfum.

Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í júní sl. nokkrar breytingar á reglum um úthlutun lóða og sölu byggingarréttar fyrir íbúðarhús. Samkvæmt þeim verður ekki heimilt að skila lóðum sem úthlutað er eftir að reglunum var breytt. Þeir sem hafa skilað lóðun á undanförnum misserum eiga þess ekki kost á fá úthlutað lóð á ný fyrr en a.m.k. þremur árum eftir að lóð var skilað.

Umsóknarfrestur er til 25. september nk. kl. 16:15. Skila skal umsóknum til Þjónustuvers Reykjavíkurborgar í Borgartúni 12 – 14.