Nýjar myndir hafa verið birtar af upptökum á Hollywoodmyndinni Noah. Myndin sem skartar Russell Crowe, Emma Watson, Jennifer Conelly og Anthony Hopkins í aðalhlutverkum var tekin upp hér á landi í fyrra. Meðal annars fóru upptökur fram við Vík í Mýrdal.

Leikkonan Jennifer Connelly skartar sínu fegursta á nýju myndunum sem  hafa verið birtar. A myndunum sem sjást á síðunni Collider sést íslenskt landslag mjög vel. Noah verður frumsýnd í lok mars 2014.