Fjármálaráðherrar ESB ríkja hafa samþykkt nýjar reglur um virðisaukaskatt við sölu á þjónustu milli aðildarlanda. Samkvæmt þeim verður virðisaukaskattur af flestum tegundum þjónustu innheimtur í því landi þar sem kaupandinn býr en ekki í staðfestulandi seljandans.

Um leið er fyrirtækjum gert kleift að ljúka uppgjöri virðisaukaskatts vegna sölu til annarra ESB ríkja í heimalandi sínu. Á heimasíður Samtaka atvinnulífsins segir að markmið reglnanna sé að minnka samkeppnisröskum milli landa vegna mishárra skatthlutfalla, draga úr reglubyrði á fyrirtæki og auðvelda þjónustuviðskipti milli ESB landa.

Af reglunum leiðir að kaupendur á þjónustu í hverju ESB ríki greiða allir sama skatthlutfall óháð staðfesturíki seljandans.

Áhrif á skatttekjur einstakra ríkja

Langan tíma hefur tekið að ná sátt um þessar reglur enda málið viðkvæmt þar sem það varðar skatttekjur og sjálfsforræði einstakra ríkja í skattamálum. Voru stjórnvöld í Lúxemborg lengst af mótfallin breytingunni af ótta við skertar skatttekjur. Að sama skapi hafa lönd með hærri skatta kvartað undan því að skatttekjur hafi rýrnað sökum flótta fyrirtækja til landa með lægst skatthlutföll. Helstu áhyggjur stjórnvalda í Lúxemborg vörðuðu skatttekjur vegna rafrænna þjónustufyrirtækja, svo sem Amazon.com, Skype og PayPal, sem öll hafa flutt aðsetur sitt til Lúxemborgar, en almennt skatthlutfall virðisaukaskatts þar er aðeins 15% eða það lægsta sem reglur ESB heimila.

Dregið úr reglubyrði

Með reglunum er jafnframt reynt að einfalda uppgjör og skil á virðisaukaskatti og létta þar með reglubyrði af fyrirtækjum sem stunda viðskipti milli landa. Er þetta gert með því að heimila fyrirtækjum sem selja fjarskipta-, sjónvarps- og rafræna þjónustu til annarra landa innan ESB að ganga frá öllum skuldbindingum sínum á virðisaukaskatti í heimalandinu. Þá verður tekið upp rafrænt kerfi til að tryggja hraðvirkt uppgjör á endurgreiðslu virðisaukaskatts sem fyrirtæki greiða utan heimalands síns og þurfa ríki sem tefja slíkar endurgreiðslur að greiða vexti. Innleiðing í áföngum

Nýju reglurnar taka almennt gildi í ársbyrjun 2010, en með hliðsjón af neikvæðum áhrifum þeirra á skatttekjur landa með lægst skatthlutföll var ákveðið að þær taki ekki gildi fyrr en í áföngum á árunum 2015-2019 varðandi sölu á fjarskipta-, sjónvarps- og rafrænni þjónustu. Frá árinu 2015 verður þeim löndum sem hafa skatttekjur af sölu fyrirtækja á slíkri þjónustu áfram heimilt að halda eftir 30% virðisaukaskatts af sölu slíkra fyrirtækja. Þessi heimild lækkar síðan í áföngum og fellur niður árið 2019, þegar allar skatttekjur falla til þess ríkis þar sem kaupandinn býr.

Sem fyrr segir kemur þetta fram á heimasíðu Samtaka atvinnulífsins.