Stjórn Viðskiptaráðs Íslands samþykkti nýverið nýja íslenska útgáfu gerðardómsreglna Gerðardóms Viðskiptaráðs Íslands. Gerðardómur Viðskiptaráðs var stofnaður árið 1930 og er því líklega elsta gerðardómsstofnun landsins en með honum eiga aðilar að geta fengið leyst úr ágreiningi með skjótum og öruggum hætti.

Gerðardómsreglurnar hafa að geyma ítarleg ákvæði um málsmeðferð fyrir gerðardómnum sem mörg eiga að fela í sér hagræði sem geri gerðarmeðferð fýsilegri kost en málsmeðferð fyrir almennum dómstólum. Má þar helst nefna hraða úrlausn ágreiningsmála og trúnað um gerðarmeðferð og dóma.

Reglurnar má nálgast hér.