Fjármálaráðuneytið hefur upplýst verslunarmenn um að fyrirhugað sé að setja reglugerð á næstunni í samræmi við tollalög sem takmarki vöruúrval í komuverslun Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Jafnframt sé gert ráð fyrir því að reglugerðin kveði á um að til að kaupa vörur í brottfararverslun fríhafnarinnar þurfi að framvísa brottfararspjaldi.

Í fréttabréfi Samtaka vesrlunar og þjónustu kemur fram að ekki er á þessari stundu vitað hvaða takmarkanir verða settar um vöruval komuverslunar, en óeðlilegt er að fríhöfnin, sem er ríkisfyrirtæki, skuli vera í samkeppnirekstri við einkareknar verslanir um snyrtivörur, rafmagnsvörur, leikföng og aðra sérvöru.

SVÞ hafa um langt skeið krafist þess að vöruvalið einskorðist við einkasöluvörurnar áfengi og tóbak og að fyrirkomulagi verslunar í FLE verði breytt þannig að dregið verði úr óeðlilegri samkeppni við almenna verslun í landinu. Sífellt hefur verið gengið lengra í samkeppni fríhafnarinnar við almenna verslun og hafa stjórnendur fríhafnarinnar verið ósparir á að auglýsa að vöruverð sé lægra þar en í Reykjavík. Verslanir á höfuðborgarsvæðinu sem selja snyrtivörur, rafmagnsvörur og ýmsa aðrar vörur sem einnig eru seldar í komuverslun fríhafnarinnar verða af viðskiptum sem fara þar fram, og ríkið verður af tekjum af þeirri sölu.

Í fréttabréfinu kemur fram að SVÞ hafi fullan hug á að fylgja þessu máli eftir á vettvangi EFTA verði ekki fljótlega af umræddri breytingu.