Seðlabanki Íslands hefur sett nýjar reglur um lausafjárhlutfall lánastofnana. Markmiðið með lausafjárreglunum er eins og áður að draga úr lausafjáráhættu lánastofnana með því að stuðla að því að þær eigi ávallt laust fé til að mæta skuldbindingum við álagsaðstæður á tilteknu tímabili. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum.

Lausafjárreglurnar eru byggðar á alþjóðlegum staðli Basel-nefndarinnar um bankaeftirlit eins og fyrri reglur Seðlabankans frá árinu 2013. Nýju reglurnar hafa ekki mikil áhrif á lausafjárkröfur sem gerðar eru til banka. Þær miða hins vegar að því að innleiða sömu skilgreiningar og framsetningu og hafa tekið gildi í Evrópusambandinu og eru að mestu leyti samhljóða reglum ESB. Í nýjum reglum Seðlabankans eru þó áfram gerðar sérstakar kröfur um lágmark lausafjárhlutfalls fyrir erlenda gjaldmiðla sem ekki er að finna í lausafjárreglum Evrópusambandsins.