Samskip opnuðu í dag tvær nýjar þjónustuskrifstofur í Þýskalandi, í Düsseldorf og München, til viðbótar skrifstofunum tveimur sem félagið starfrækir í Bremen og Hamborg. Frank Küpperbusch er yfirmaður skrifstofunnar í Düsseldorf og starfsmenn þrír talsins en tveir á skrifstofunni í München þar sem Reinhold Stuy er í forsvari.

Opnun nýju skrifstofanna í Þýskalandi er enn einn áfanginn í útrás Samskipa og hefur það að markmiði að þjóna enn betur ört vaxandi starfsemi félagsins á meginlandi Evrópu segir í tilkynningu frá félaginu.

"Skrifstofunni í Düsseldorf er ætlað að þjóna vaxandi flutningastarfsemi okkar í Rínardal og Ruhrhéraðinu en suðurhéruð Þýskalands verða á ábyrgð Münchenskrifstofunnar,? segir Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa. Rekstur beggja skrifstofanna heyrir undir skrifstofu Samskipa í Bremen þar sem Harald Dönselmann er framkvæmdastjóri.

Samskip eru alþjóðlegt félag sem býður heildarþjónustu á sviði flutninga, vörustýringar og vörumeðhöndlunar. Með tilkomu nýju skrifstofanna í Þýskalandi starfrækja Samskip nú 32 skrifstofur í 14 löndum, auk þess sem umboðsmenn félagsins eru starfandi um allan heim.