Samkvæmt upplýsingum frá Bankasýslu ríkisins verður tilkynnt á morgun um hvaða fimm menn verða nýir í bankaráði Landsbankans á aðalfundi á fimmtudag. Þetta kemur fram á vef Vísis í dag en fimm af sjö bankaráðsmönnum munu ekki sækjast eftir endurkjöri vegna Borgunarmálsins.

Bankasýslan hefur sent nöfn þeirra fimm sem hún gerir tillögu um í bankaráð Landsbankans. Samkvæmt lögum á að leggja fram upplýsingar um frambjóðendur tveimur dögum fyrir aðalfund í síðasta lagi. Því má búast við tilkynningu um framboð á vef Landsbankans á morgun fyrir klukkan fimm.