Lyfjagreiðslunefnd hafnar umsóknum um nú sjúkrahúslyf vegna skorts á fjárheimildum. Því hafa íslenskir sjúklingar ekki sama aðgang að lyfjum eins og eru í boði í nágrannalöndum okkar. Frá þessu er sagt á vef Frumtaka , samtaka frumlyfjaframleiðenda.
Þrátt fyrir samþykkt ríkisstjórnar Íslands í byrjun árs um að auka fjárveitingar til lyfjakaupa og umtalsverðrar styrkingu krónunnar er þessi staða komin upp. Styrking krónunnar hefur bein áhrif á lækkun lyfjaverðs og því ætti kostnaður hins opinbera vegna lyfjakaupa að taka mark á því.
Í frétt Frumtaka er einnig sagt frá því að „samkvæmt upplýsingum frá Sjúkratryggingum Íslands er búist við að útgjöld vegna sjúkrahúslyfja fari 9% fram úr heimildum fjárlaga í lok árs, þrátt fyrir loforð ríkisstjórnarinnar um 526 milljóna króna aukafjárveitingu. Fjárlög og viðbótarframlög þessa árs nema 6.792 milljónum króna, en áætluð útgjöld nema 7.399 milljónum króna, samkvæmt upplýsingum Sjúkratrygginga.“
Haft er eftir Jakob Fali Garðarssyni að sama staða hafi komið upp í apríl í fyrra og síðla árs 2014. Hann tekur einnig fram að afleiðing sé því sú að íslenska heilbrigðiskerfið býður alvarlega veiku fólki ekki sömu úrræði á meðferð og sjúklingar í þeim löndum sem við miðum okkur við.
Að lokum er haft eftir Jakobi:
„Það virðist deginum ljósara að hér þurfi annað hvort að stórbæta áætlanagerð vegna sjúkrahúslyfja við gerð fjárlaga, eða búa til svigrúm til að bregðast við auknum útgjöldum, sé stjórnvöldum yfir höfuð alvara með yfirlýsingum um að hér eigi heilbrigðiskerfið að standast samanburð við það sem best gerist annars staðar.“