Nýliðarnir á íslenska laxveiðimarkaðnum, norska fyrirtækið Heggøy Aktiv sem hefur samið um leigu á Ytri-Rangá, er með tengsl við einn ríkasta mann Noregs. Christine Mohn Furre, dóttir milljarðamæringsins Trond Mohn, er eiginkona Olaf Harald Furre eiganda Heggøy Aktiv. Hún situr í stjórn fyrirtækisins. Eignir Trond Mohn eru metnar á tæplega 250 milljarða króna en til samanburðar eru eignir útgerðarmannsins Kjell Inge Røkke metnar á ríflega 260 milljarða.
Heggøy Aktiv greiðir 300 milljónir króna fyrir þriggja ára leigu á Ytri-Rangá eða 100 milljónir á ári. Í Viðskiptablaðinu er rætt stuttlega við Olaf Harald Furre og Karl Eyjólf Karlsson, sem er framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Hann svarar því m.a. hvort fyrirtækið hafið nýtt sér fjárfestingaleið Seðlabankans sem felur í sér allt að 20 prósenta afslátt af íslensku krónunni.
Nánar er fjallað um málið Í Viðskiptablaðinu, sem kemur út á morgun. Meðal annars efnis í blaðinu er:
- FME vill að regluvörður verði skipaður á Alþingi
- Lífeyrissjóðirnir drottna yfir Kauphöllinni
- Ísland á svipuðu róli og Þýskaland eftir fyrra stríð
- Starfsmenn Landsbankans fá hlutabréf eftir áramót
- Íslenskar Netflix-þjónustur á leiðinni
- Sérstakur dregur til baka ákæru á hendur Erlendi Magnússyni
- Næstum eitt af hverjum fimm fyrirtækjum á vanskilaskrá
- Viðskiptablaðið rýnir í skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika
- Langtímaáætlun vantar í ríkisfjármálin
- Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor, segir fyrirtækið hafa verið undir hæl Samkeppniseftirlitsins undanfarin ár.
- Steingrímur Sigurgeirsson og Þórdís J. Sigurðardóttir ræða um vottað námskeið um gerð sjálfbærniskýrslna.
- Jón Gunnar Geirdal ræðir um markaðsmálin
- Viðskiptablaðið kannar hvað fólk borðar þegar enginn sér til þess
- Félagið Stjórnin tekið til gjaldþrotaskipta
- Nærmynd af Hrund Rudolfsdóttur, næsta forstjóra Veritas.
- Huginn & Muninn eru á sínum stað auk Týs sem fjallar um Guð-blessi-Ísland-ræðu Geirs H. Haarde
- Óðinn skrifar um millifærsluríkið
- Þá eru í blaðinu pistlar, myndasíður, VB Sjónvarp í vikunni og margt, margt fleira