Herdís Gunnarsdóttir hefur tekið sæti sem aðalmaður í stjórn Íslandsbanka hf. en hún tekur sæti Flóka Halldórssonar sem sagði sig nýverið úr stjórn bankans.

Herdís hefur verið varamaður í stjórn Íslandsbanka frá apríl 2016. Hún er jafnframt framkvæmdastjóri réttindasviðs Tryggingastofnunar og hefur áður starfað, m.a. sem forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og sem tímabundið settur forstjóri Reykjalundar.

Herdís er sögð hafa mikla reynslu af stjórnarstörfum á vettvangi félagasamtaka, stéttarfélaga, lífeyrissjóða, banka og í Evrópusamstarfi.