Jón Garðar Guðmundsson hefur verið ráðinn aðstoðarforstjóri og framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Icelandic Group. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Jón Garðar hefur frá árinu 2008 verið framkvæmdastjóri og aðalráðgjafi Glacier Securities LLC með ráðgjöf útgerðar og fiskeldisfyrirtækja sem aðalsvið.

Icelandic Group hefur einnig ráðið nýjan framkvæmdastjória Fiskvald í Reykjanesbæ. Jón Þór Klemensson tekur við starfinu en hann starfaði áður sem sviðsstjóri bolfisksviðs hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum frá 2010 og þar áður sem innkaupa- og vinnslustjóri hjá Icelandic UK.