Kristín Linda Árnadóttir hefur verið ráðin aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, og tekur hún við starfinu af Rögnu Árnadóttir sem ráðin var í sumar sem skrifstofustjóri Alþingis.

Kristín Linda hefur verið forstjóri Umhverfisstofnunar frá árinu 2008. Þar áður gegndi hún starfi sviðsstjóra lögfræði- og stjórnsýslusviðs stofnunarinnar og var staðgengill forstjóra.  Á árunum 1998 til 2007 starfaði hún sem lögfræðingur í umhverfisráðuneytinu á skrifstofu laga og upplýsingamála.

Kristín Linda lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1998, meistaranámi í alþjóðlegum umhverfisfræðum (LUMES) frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð árið 2002 og LL.M. meistaragráðu í Evrópurétti við lagadeild Háskólans í Lundi árið 2003. Hún hefur lagt stund á stjórnunarnám við Saïd Business School í Oxford háskóla. Kristín var jafnframt um tíma stundakennari og prófdómari í námskeiðum í umhverfisrétti við háskólastofnanir á Íslandi.

Kristín Linda hefur tekið þátt í ýmsu alþjóðasamstarfi á vettvangi umhverfismála. Meðal annars sem fulltrúi Íslands í evrópsku neti ábyrgðaraðila á innleiðingu vatnatilskipunar Evrópusambandsins, evrópsku neti forstjóra evrópskra umhverfisstofnana, fulltrúi Íslands í stýrihópi um norræna umhverfismerkið Svaninn og stýrir nú vinnuhópi í Norðurskautsráðinu sem vinnur að því að draga úr losun sóts og metans (EGBMC) á norðurslóðum.