Ragna Árnadóttir lögfræðingur mun gegna starfi aðstoðarforstjóra Landsvirkjunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun.

Gerðar hafa verið breytingar á framkvæmdastjórn fyrirtækisins og munu starfsmannasvið og upplýsingasvið nú tilheyra skrifstofu forstjóra og heyra undir aðstoðarforstjóra.

Ragna Árnadóttir var dómsmálaráðherra áður en hún hóf störf hjá Landsvirkjun. Þar áður var hún skrifstofustjóri í Dómsmálaráðuneytinu.

Ríkisstjórnarfundur
Ríkisstjórnarfundur
© Axel Jón Fjeldsted (VB MYND/AXEL JÓN)