Hanna Dögg Maronsdóttir hefur verið ráðin í starf Sölu- og markaðsstjóra hjá Bústólpa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bústólpa. Hanna Dögg mun einnig gegna starfi aðstoðarframkvæmdastjóra hjá fyrirtækinu og vera staðgengill framkvæmdastjóra í fjærveru hans. Um nýtt starf er að ræða hjá fyrirtækinu.

Hanna Dögg er menntuð sjávarútvegsfræðingur frá Háskólanum á Akureyri og hefur unnið við sölu og markaðsstörf, fyrst sem Sölustjóri hjá Norðurmjólk og síðar hjá MS á Akureyri. Síðastliðin þrú ár hefur Hanna Dögg gengt starfi Gæðastjóra hjá MS á Akureyri. Hún mun koma til starfa í lok sumars og lætur hún af störfum hjá MS frá sama tíma.