Ingvar Haraldsson, sem starfað hefur sem blaðamaður á Viðskiptablaðinu undanfarin misseri, hefur verið ráðinn aðstoðarritstjóri blaðsins. Áður en Ingvar kom til Viðskiptablaðsins starfaði hann meðal annars sem blaðamaður á Fréttablaðinu og Vísi.

Ingvar er 26 ára gamall. Hann hefur meistarapróf í hagsögu frá London School of Economics og BA próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands. Ritstjóri Viðskiptablaðsins er Trausti Hafliðason.