Héraðsfréttablaðið Bæjarins besta á Vestfjörðum hefur ásamt fréttavefnum bb.is og ferðablaðinu Vestfjörðum verið selt til nýs eiganda. Frá þessu er greint á bb.is, en Bryndís Sigurðardóttir íbúi á Flateyri mun taka við fjölmiðlinum.

Bryndís er viðskiptafræðingur, fædd í Ölfusi, uppalin í Hveragerði en hefur verið búsett á Flateyri frá 2013. Bryndís mun ritstýra öllum miðlunum og tekur hún við rekstrinum 1. ágúst. Kemur fram að engar stórkostlegar breytingar séu fyrirhugaðar við eigendaskiptin.

Sigurjón J. Sigurðsson, ritstjóri BB og bb.is lætur af störfum um mánaðamótin eftir tæplega 31 ár við útgáfu BB. Hann stofnaði blaðið árið 1984 ásamt félaga sínum Halldóri Sveinbjörnssyni, sem lét af störfum við útgáfuna í ágúst á síðasta ári.

„Það er von mín að Vestfirðingar standi jafn vel við bakið nýjum eiganda og þeir hafa gert við okkur Halldór í gegnum árin. Bæjarins besta hefur alla burði til að vera aðal fréttablað Vestfirðinga í framtíðinni sem hingað til og bb.is, sem oft hefur verið nefndur útidyrnar að Vestfjörðum, er enn fjölsóttasti vefur Vestfirðinga og mun vonandi eflast í höndum nýs eiganda. Ég vil að lokum þakka Vestfirðingum fyrir stuðninginn í gegnum árin og óska nýjum eiganda velfarnaðar í störfum hennar,“ segir Sigurjón við bb.is.