Fyrirtækið Softverk ehf. hefur opnað nýjan fasteignarleitarvef á slóðinni eign.is . Á vefnum er hægt að sjá upplýsingar um allar fasteignir sem eru til sölu og leigu á Íslandi á hverjum tíma eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Softverk. Á vefnum birtast allar eignir á korti og geta notendur því sé eignir fyrir ákveðin svæði eða allt landið sem lausar eru til sölu eða leigu.

„Tilgangur Eign.is með kortaviðmótinu er að auðvelda notendum leitina að draumafasteigninni. Eign.is er ekki hefðbundin fasteignavefsíða heldur sérhæfð fasteignaleitarvél sem fylgir ámóta aðferðafræði og t.d. dohop.is.“ segir Holberg Másson, framkvæmdastjóri Softverk. Eign.is er öllum opin og þjónustan er notendum að kostnaðarlausu