Á þessari stundu stendur yfir blaðamannafundur á Akureyri þar sem verið er að kynna nýjan fjárfestingabanka. Að bankanum standa KEA, einstaklingar á Akureyri og nokkrir fyrrverandi starfsmenn KB banka.

Heimildir Viðskiptablaðsins segja að fyrir hópnum fari Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri hjá KB banka, en hann stýrði veltubók bankans.