Hans Svenningsen hefur verið ráðinn fjármálastjóri norræna lággjaldaflugfélagsins Sterling Airlines. Danskir fjölmiðlar greina frá þessu í dag. Svenningsen tekur við starfinu þann 1. desember

Almar Örn Hilmarsson er forstjóri samstæðunnar, en Sterling sameinaðist nýlega danska félaginu Mærsk Air. Sterling-samstæðan er í eigu eignarhaldsfélagsins Fons, sem er stjórnað af Pálma Haraldssyni og Jóhannesi Kristinssyni. Félagið á í viðræðum við FL Group um hugsanlegt samstarf eða samruna.